CASIOTRON - 50 ára afmælisútgáfa
50 ár af CASIO úrum:
Endurútgáfa af CASIOTRON í takmörkuðu upplagi
Í tilefni 50 ára afmælis fyrsta CASIO úrsins - CASIOTRON - er úrið endurútgefið í endurbættri mynd. Úrið var fyrst gefið út árið 1974, og var fyrsta úrið í heiminum með sjálfvirkt dagatal.
Úrið er nú endurútgefið í nánast sömu mynd, en með nokkrum nútímalegum uppfærslum. Aðeins 4.000 eintök voru framleidd, og er hvert úr númerað.
Nýja úrið, TRN-50, heldur í hönnun og anda upprunalega CASIOTRON úrsins, en nú bætist meðal annars við tenging við snjallsíma sem sér til þess að úrið sé alltaf stillt á rétt tímabelti, ásamt fleiri nútíma þægindum.