Greiðsluleiðir
Það er auðvelt og öruggt að versla á Klukkan.is. Við leggjum mikið upp úr öryggi í netviðskiptum, og bjóðum því upp á nokkrar mismunandi greiðsluleiðir í samstarfi við viðurkennda aðila.
Mögulegt er að greiða fyrir vörur á Klukkan.is með greiðslukortum, bæði kreditkortum og debetkortum. Einnig bjóðum við kortalaus viðskipti, en þá fá viðskiptavinir greiðsluseðil í heimabanka með því að nýta sér þjónustu Netgíró, eða millifæra beint á okkur þegar gengið er frá pöntun.
SAMSTARFSAÐILAR OKKAR
BORGUN
Greitt með kreditkorti eða debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Við tökum á móti öllum helstu greiðslukortum. Engar greiðslukortaupplýsingar eru vistaðar á okkar netþjóni, heldur fer allt greiðsluferlið fram á greiðslusíðu Borgunar.
NETGÍRÓ
Þægileg leið til að versla. Eingreiðsla með 14 daga greiðslufresti, eða raðgreiðslur í 2-12 mánuði, beint í heimabankann. Þú færð því vörurnar strax en greiðir síðar.
PEI
Val um greiðslur með kortum og greiðsluseðlum og auðvelt að dreifa greiðslum á lengri tíma og hefur ekki áhrif á heimildir á greiðslukortum eða bankaviðskiptum. Skilvirkt viðmót flýtir fyrir afgreiðslu og gerir kaupin þægilegri.
AÐRAR EINFALDAR GREIÐSLULEIÐIR
Millifærsla
Með millifærslu í heimabanka. Greiðsla þarf að berast innan 24 klst. og kvittun send úr heimabanka á klukkan(hjá)klukkan.is þegar greiðsla hefur verið framkvæmd.