Skilmálar
Almennt
Klukkan ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, sé vara ekki til á lager eða hafi rangar verðupplýsingar verið settar fram. Klukkan ehf. áskilur sér einnig rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vöru fyrirvaralaust.
Afhending vöru
Við bjóðum upp á nokkra mismunandi valmöguleika á afhendingu á vörum.
- Vörur er hægt að sækja í verslanir okkar á Nýbýlavegi 10 og í Kringlunni.
- Sé valið að sækja í verslun er hægt að nálgast um leið og slíkt er staðfest með tölvupósti, en þó aðeins á opnunartíma verslunar.
- Hægt er að fá vörur afhentar á næsta afgreiðslustað Dropp, eða með heimsendingu á vegum Dropp sem gildir þó eingöngu á Höfuðborgarsvæðinu.
- Sé pantað fyrir hádegi er hægt að nálgast vöruna síðar sama dag á afgreiðslustöðum Dropp á Höfuðborgarsvæðinu.
- Heimsending á Höfuðborgarsvæðinu er einnig samdægurs sé pantað fyrir hádegi. Vörur sem afhenda skal á landsbyggðinni eru afhentar næsta dag sé pantað fyrir hádegi. Annars næsta dag.
Um vörur sem dreift er af Dropp og Flytjanda gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent frá okkur til flutningsaðila og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.
Allar pantarnir að andvirði 15.000 kr. eða meira bera engan sendingarkostnað.
Frí heimsending á vörum nær til allra staða á Íslandi, en ekki til annara landa.
Skiptiréttur
Kaupandi hefur 90 daga til skipta vörunni að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum með áföstum miða þar sem kemur fram númer og strikamerki vöru sé það til staðar, og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Vörum fæst skilað gegn inneignarnótu. Við skil á vöru er miðað við verð hennar þann dag sem henni er skilað. Sé viðkomandi vara á útsölu eða á sértilboði við vöruskil eða skipti, er miðað við verð vörunnar þann dag. Vörum á Outlet er ekki hægt að skipta í aðrar vörur. Ef senda þarf vöruna til Klukkunnar ehf. vegna skipta, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði sem og af kostnaði vegna sendingar á annarri vöru til baka vegna skipta.
Endurgreiðsla
Vörur sem keyptar eru í netverslun og eru sendar heim til kaupanda, er hægt að fá endurgreiddar. Kaupandi hefur 14 daga til að fara fram á endurgreiðslu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Gildir ekki um vörur sem eru afhentar í verslun þar sem kaupandi sér og skoðar vöruna við afhendingu. Í þeim tilfellum fæst inneignarnóta.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef senda þarf vörur til Klukkunnar ehf. vegna vöruskila, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði.
Endurgreiðsla gildir ekki ef verð vörunnar er lægra en 7.045kr.
Netverð
Öll verð í netverslun innihalda virðisaukaskatt og eru í íslenskum krónum. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Afslættir
Afslættir gilda almennt af öllum vörum, en ekki af þjónustu.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað.
Persónuupplýsingar
Klukkan ehf. geymir notendaupplýsingar á öruggum vefþjónum. Notendur mega ekki gefa þriðja aðila aðgangsupplýsingar sínar. Klukkan vekur athygli á að ef greiðslukortaupplýsingar notenda eru tengdar notendaaðgangi þá ber Klukkan ekki ábyrgð á misnotkun ef notandi hefur deilt aðgangsupplýsingum sínum með þriðja aðila.
Greiðslukortaupplýsingar eru geymdar á öruggum vefþjónum Teya, Netgíró og Pei, og geymir Klukkan.is eða vefsíður á vegum Klukkunnar ehf. engar greiðslukortaupplýsingar.
Klukkan fer eftir lögum númer 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Markaðsefni
Notendum gefst kostur á að skrá sig til að taka á móti markaðsefni í gegnum tölvupóst frá Klukkan ehf.. Einungis verður sendur markaðspóstur á vegum Klukkan ehf. og upplýsingar um notendur verður ekki deilt með þriðja aðila.
Ábyrgð
2ja ára ábyrgð er á vörum, og eru viðgerðir innan þess tíma þér að kostnaðarlausu, samkvæmt eftirfarandi:
- Stoppi úr eða klukka án þess að það hafi orðið fyrir skemmdum, svo sem hnjaski eða raka.
- Sé gangur úrs eða klukku óeðlilegur, svo sem ef það seinkar sér eða flýtir.
- Vara er gölluð
Ábyrgðin nær ekki til eftirfarandi:
- Bilana eða skemmda vegna vanrækslu og slæmrar meðferðar.
- Bilana vegna raka og móðu, sé úrið ekki vatnsþétt (5ATM).
- Skemmda á gleri, kassa, eða keðju/ól.